Skilmálar þjónustu
Aldurstakmark
Til að panta hjá Desma þarf viðskiptavinur að hafa náð 20 ára aldri. Framvísa þarf gildum skilríkjum við afhendingu.
Verð á vöru og sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11%-24% vsk.
Desma áskilur sér rétt til að rukka fyrir sendingarkostnað ef ekki er tekið á móti pöntun þegar hún berst.
Desma áskilur sér rétt til að hætta við pöntun ef við teljum af einhverjum ástæðum að viðskiptavinur hafi ekki aldur til að versla áfengi.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga.
Trúnaður (öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.
Desma áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða aldurstakmarka, og einnig til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Desma.is
SP Grupa sp. z o.o.
ul. Józefa Jałowego 16/1
35-010 Rzeszów, Póllandi
Sími: 850 6969
Netfang: desma@desma.is